Búið er að rífa Nasa-tónleikasalinn við Austurvöll, sem áður hafði verið friðlýstur. Egill Helgason segir frá þessu á bloggsíðu sinni.
Salurinn var viðbygging við gamla Kvennaskólann, byggð 1942, en hús skólans frá 1878 sem snýr að Austurvelli stendur enn.
„Nú stendur til að byggja eftirlíkingu af salnum. Hún á að vera að hluta til neðanjarðar og uppfylla reglur um hljóðvist sem sagt er að ekki hafi verið hægt í gamla húsnæðinu. Vonandi eru það einhverjar sárabætur, það er ekki um auðugan garð að gresja þar sem eru staðir fyrir smærri lifandi tónlistarviðburði í Reykjavík,“ segir Egill.