Frétt dagsins er skattamál aflandsfélagsins Wintris. Í ljós hefur komið að félagið greiddi ekki skatta í samræmi við íslensk lög.
Þegar tilvist þess varð hins vegar opinber báðu Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og eiginkona hans ríkisskattstjóra um að fá að „leiðrétta“ framtöl sín.
Hann samþykkti það, en ágreiningur kom upp um tiltekna uppgjörsaðferð. Sigmundur Davíð og frú kærðu niðurstöðu ríkisskattstjóra um hana til yfirskattanefndar, sem úrskurðaði nýlega þeim í hag.
Fjölmiðlar segja frá þessu máli með mjög ólíkum hætti, en skilmerkilegustu fréttaskýringuna á líklega Stefán Pálsson sagnfræðingur
„Er þetta samt ekki dálítið eins og að vera nappaður við búðarhnupl, þurfa að greiða fyrir hlutinn og slá sig svo til riddara út á að hafa fengið vitlaust til baka?“
Nappaður við búðarhnupl
Fleiri fréttir
Nýjast