Tilraun þar sem nanóróbótar samansettir af DNA efni stoppuðu vöxt krabbameinsæxlis gæti vísað veginn í því hvernig krabbamein verður læknað í framtíðinni.
Tæknin sem notuð var er lýst í grein í Nature Biotechnology. Hún gengur út á það að útbúa nanóróbótana þannig að DNA efnið í þeim sleppir innbyggðu storkuefni úr sér þegar það kemst í snertingu við krabbameinsfrumur, og aðeins þá. Í tilraunum alþjóðlegs hóps vísindamanna frá Bandaríkjunum og Kína. Einskonar her af þessum agnarsmáu nanóróbótum var sprautað inn í æðakerfi músa og svína sem voru með krabbameinsæxli. Í ljós kom að róbótarnir náðu að finna og stöðva vöxt æxlanna og jafnvel kæfa þau alveg.
Tæknin er þó enn á frumstigi, enn hefur ekki verið sýnt fram á að hún sé örugg, valdi til dæmis ekki blóðtappa í heila, sem reyndar gerðist heldur ekki í tilraununum.
Frétt um tilraunirnar í vefritinu Inverse