Nánast óbreytt fylgi x-d

Ný könnun á fylgi flokkanna í Reykjavík sýnir að staða Vinstri grænna er sterk en fylgi Sjálfstæðisflokksins er nánast óbreytt frá því í kosningunum árið 2014. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Gallup gerði fyrir Viðskiptablaðið.

Samkvæmt könnun Gallup sem gerð var í síðasta mánuði er meirihlutinn - Samfylkingin  Björt framtíð  Vinstri græn og Píratar - nánast með sama fylgi og í kosningunum árið 2014 eða samtals 61,4%. Meirihlutinn heldur velli og vel það. Þó ber að nefna að töluverð breyting er á fylgi þessara flokka samkvæmt könnun Gallup.

Fylgi Samfylkingarinnar hríðfellur. Svipaða sögu er að segja um Bjarta framtíð. Sá flokkur sem heldur meirhlutanum í borginni á floti eru Vinstri græn. Fylgi þeirra hefur tvöfaldast frá kosningunum árið 2014. Heldur hefur gefið á bátinn hjá Pírötum. Sjálfstæðisflokkurinn er stærsti flokkurinn í borginni en fylgið er nánast óbreytt frá því í kosningunum árið 2014. Framsóknarflokkurinn og Flugvallarvinir hafa sótt í sig veðrið. Aðrir flokkar mælast með lítið fylgi.  

rtá

Nánar www.vb.is www.mbl.is www.gallup.is