Nánast námskeið í hláturskasti

Leiðindi koma hvergi við sögu í sjónvarpsþættinum Helginni á Hringbraut í kvöld þar sem leikarinn ástsæli Karl Ágúst Úlfsson gerir upp vikuna á sinn einstaka máta með góðum gestum í myndveri, að þessu sinni þeim Gunnari Helgasyni leikara og Jónu Hrönn Bolladóttur sóknarpresti í Garðabæ. Bæði hafa þau sterka sýn á atburði vikunnar og greina þá með afar markvissum hætti, en því er þó ekki að leyna að mestmegnis er hlegið og skríkt í þessum þætti kvöldsins sem er þeirrar náttúru að taka sig ekkert alltof alvarlega. 


Og eins og fyrri þáttinn getur enginn látið inngangsorð Karls Ágústs framhjá sér fara, sem eru að verða fjaðraskúf þáttarins, en þar hæðist hann að öllu því sem gerðist það sem af er þessari viku og ekki síst þeim sem létu það gerast.


Helgin er frumsýnd kl. 21.00 á föstudagskvöldum í glettilega opinni dagskrá - og endursýnd á laugardagskvöldum á sama tíma.