„Flatarmál jökla frá 1900 hefur minnkað um 2000 ferkílómetra. Það samsvarar 350.000 fótboltavöllum. Þetta er gríðarlega stór tala. Á 20. öldinni hafa jöklarnir hopað og gengið fram og staðið í stað í takt við hitastigsbreytingar og veðurfarsbreytingar. En frá 1995 hafa nánast allir jöklar hopað og rýrnað.“ segir Hrafnhildur Hannesdóttir jöklafræðingur.
Hrafnhildur, sem fylgist með sporðamælingum jökla hjá Veðurstofu Íslands, er gestur Sigmundar Ernis í frétta- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut í kvöld. Þar ræðir hún uggvænlega stöðu jökla í dag.
Jöklar Íslands þekja 10-11 prósent af flatarmáli landsins og eru þeir nánast allir að hopa. Samkvæmt mælingum Veðurstofunnar á þeim 30-40 sporðum sem stofan mælir reglulega eru svo til allir jöklar landsins að hopa. „Það er á einstaka stöðum þar sem eru litlar breytingar, jafnvel einhverjir örfáir metrar þar sem þeir virðast skríða fram. En svo hefur það reyndar gerst á síðustu árum að aðgengi að mörgum sporðum er orðið mjög erfitt.“
Nánar er rætt við Hrafnhildi í 21 í kvöld. Þátturinn hefst klukkan 21:00.