Í dag eru 35 ár síðan almannatengillinn Steingrímur Sævarr Ólafsson snæddi síðast sælgæti.
Hann upplýsir að ákvörðunina hafi hann tekið sem táningur vegna ótta við tannlækna.
Þetta kemur fram í fésbókarfærslu Steingríms eða Denna eins og hann er jafnan kallaður meðal kunnugra. Hann býr yfir langri sögu sem fjölmiðlamaður og starfaði m.a. sem fréttastjóri Stöðvar 2.
„Á gamlársdag 1980 fékk ég mér appelsínugula molann úr Macintoshinu og síðan ekki meir. Ástæðan? Ég hræddist ekkert meir í öllum heiminum en tannlækna. Ekkert hræddi mig meir. Ég svaf ekki (í alvöru) í nokkra daga fyrir tannlæknaheimsóknir og tíminn í stólnum...hreint helvíti. Þetta (og köngulær) var mín versta martröð, mín fóbía,“ segir Steingrímur.
Þrátt fyrir róttæka og að mörgu leyti virðingarverða aðgerð fór svo að tennur skemmdust og Steingrímur þurfti að leita til tannlæknis. Og viti menn, tannsar reyndust engin óargardýr, þvert á móti.
„Í dag eigum við tannlæknirinn minn, Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson, í fínu sambandi og fáir hafa gert meira til að hjálpa mér yfir óttaþröskuldinn en einmitt hann. Nammiskálinn fær hins vegar að vera áfram í friði fyrir mér, 35. árið í röð.
Gleðilegt ár elskurnar mínar og munið að það er í raun ekkert að óttast nema óttann sjálfan...og köngulær,“ skrifar fréttastjórinn fyrrverandi í léttum dúr.