„Þingmannsstarfið er þannig að ef þú ætlar að sinna því af viti fyrir þjóðina þá er starfið miklu meira en fullt starf, miklu annasamara í raun en 100% starf. Það er útilokað að sá geti sinnt þingstörfum almennilega sem stundar einnig háskólanám sem maður skyldi ætla að ætti að vera krefjandi. Það er hreinlega forkastanlegt að sumir þingmenn leyfi sér að gera þetta.“
Þetta segir Þór Saari, fyrrum þingmaður Hreyfingarinnar, í samtali við Hringbraut vegna fréttar Hringbrautar fyrr í dag þar sem fjallað var um þann sið sem hefur skapast á yfirstandandi kjörtímabili, að allnokkur dæmi eru um að þingmenn sitji samhliða þingstörfum á skólabekk. Hafi það komið niður á nefndastörfum á fundum að þeir vinni að heimaverkefnum í náminu í stað þess að rækta skyldur sínar.
Séð og heyrt greindi fyrst frá óánægju annarra þingmanna með þetta í frétt Séð og heyrt voru nefndir sem námsmenn á þingi nú eða fyrr á yfirstandandi kjörtímabili Karl Garðarsson, Framsókn, Silja Dögg Gunnarsdóttir, Framsókn, Vilhjálmur Árnason, Sjálfstæðisflokki, Elsa Lára Arnardóttir, Framsókn, Haraldur Einarsson, Sjálfstæðisflokki og Róbert Marshall, Bjartri framtíð. Listinn er ekki sagður tæmandi.
„Þekkjandi þetta starf í 4 ár finnst mér hneyksli að þingmenn niðurlægi þingmennskuna svona og lýðræðið með því að sinna ekki starfinu sem skyldi. Ég bjó sjálfur á námsárunum í New York og var þá að reyna vinna með. Það var þó ekki vinna sem var neitt nálægt því eins annasöm og krefjandi og þingmennskan en niðurstaða mín er að ef maður er bæði í námi og vinnu þá gerir maður báða hluti illa,“ segir Þór Saari og veltir þar með einnig upp spurningu um gæði menntunar.
Hann vill þó taka fram að hans reynsla sé að flestir þingmenn sinni starfinu vel. En hann hafi kynnst nokkrum undantekningum frá því og nefnir sérstaklega nöfn Árna Johnsen og Róberts Marshall. Eftir því sem fram kemur í Séð og heyrt stundar Róbert nú nám í ferðamálafræðum samhliða þingmennsku.
„Það verða alltaf þingmenn innan um sem slugsa, þessi fjögur ár sem ég sat á þingi var hending ef Árni Johnsen sást þerna niður frá,“ segir Þór.
Þá segir Þór um Róbert Marshall að það hafi bitnað á stjórnarskrármálinu 2013 skömmu fyrir kosningar þegar ögurstund rann upp að Róbert Marshall hafi iðulega það vor verið á fjöllum með ferðamenn á vorin. Hann hafi sem fulltrúi í stjórnarskrárnefnd ekki sinnt skyldum og ekki upplýst Guðmund Steimgrímsson um vinnu. Það hafi verið slæmt og ekki hjálpað málinu öllu.
„Svona bitnar fjarvera þingmanna á þingstörfum. Þetta er fúsk og forkastanlegt sem slíkt.“
Illugi Jökulsson segir á facebook vegna frétt af námi þingmanna: „Í mínu ungdæmi fengu námsmenn sér kannski stopula vinnu í sjoppu meðfram námi. Þessir námsmenn hafa hins vegar fengið sér aukavinnu á Alþingi. Skemmtilegt.“
Víða hefur blossað upp mikil umræða á samfélagsmiðlum þar sem orðið „spilling“ kemur síendurtekið fyrir í ummælum landsmanna um þá þingmenn sem séu á fullum launum hjá þjóðinni en sitji á skólabekk á sama tíma.