Nálin hefur göngu sína

Nálin er nýr sjónvarpsþáttur á Hringbraut sem fjallar um þjóðmál og málefni sem snúa að hagsmunum ungs fólks sem er í námi og á leið út í lífið. Í Nálinni verða fréttaskýringar og viðtöl um helstu dægurmál á döfinni að hverju sinni. Umsjónarmenn þáttarins eru Karl Ólafur Hallbjörnsson og Bjarni Halldór Janusson.

Í fyrsta þætti Nálarinnar í kvöld, er fjallað um fyrirhugaðar breytingar á Lánasjóði íslenskra námsmanna. Í þáttinn koma Ásta Guðrún Helgadóttir þingkona Pírata og Vilhjálmur Árnason þingmaður Sjálfstæðisflokksins til að ræða kosti og galla frumvarpsins og ólík pólitísk sjónarmið til þess.