Götur eru víða þungfærar en samkvæmt Veðurstofu er snjódýpt í Reykjavík nú 32 sentimetrar.
Það er nálægt meti. Mesta snjódýpt í Reykjavík í nóvember er 38 sentimetrar.
Þannig er veðurspáin:
Norðlæg átt 5-15 m/s og víða él, hvassast á Vestfjörðum. Hægari um S-vert landið og úrkomulítið S- og SV-lands. Frost 2 til 12 stig. Vestlæg átt 8-15 m/s NA-til og snjókoma eða él, en dregur úr vindi og úrkomu síðdegis. Hvessir í nótt með snjókomu undir morgun, norðan og norðvestan 10-18 um og eftir hádegi, hvassast við N-ströndina. Lengst af hægari og þurrt að kalla um landið S-vert. Dregur úr frosti á morgun.