Nágrannar ekki alltaf fyrirsjáanlegir

Páll Þór Ármann, rekstrarhagfræðingur hjá Eignaumsjón, sem var gestur fasteignaþáttarins Afsal sem sýndur var á Hringbraut í gærkveldi, segir mörg mál koma upp hjá húsfélögum fjöleignahúsa enda mætti líkja slíku sambýli við fjölbreytt og litríkt samfélag ólíks fólks.

Hann segir það því ósköp eðlilegt að mörg mál geti komið upp á milli íbúa og því stundum sagt í gríni að \"nágrannarnir séu ekki alltaf eins og þeir eigi að vera.\" Þegar þriðji aðili eins og Eignaumsjón komi að borði, liðki það oft fyrir í samtölum og ákvarðanatöku íbúa. Það komi til vegna þess að fyrirtæki sem annist rekstur húsfélaga komi alltaf að borði sem hlutlaus aðili.

Þá segir Páll Þór algengt að hjá húsfélögum sé erfitt að fá fólk í stjórn. Þess vegna sé það víða svo að sumir íbúar eru búnir að sitja í stjórnum í mörg ár. Bókhalds- og innheimtuvinna, leit að tilboðum og ýmislegt fleira sé því í höndum íbúa, þótt oft og tíðum feli þetta í sér mjög mikla vinnu fyrir viðkomandi.

Að sögn Páls, virðist það oft gleymast hjá íbúum í fjölbýli að starf húsfélags feli í sér mjög mikla virðisvinnu fyrir eigendur allra íbúa. Það sé vegna þess að tilgangur húsfélagsins sé fyrst og fremst að viðhalda og verja sameignina í heild sinni, sem auki síðan virði allra eigenda.  Þetta atriði eigi til að gleymast og á stundum frekar eins og fólk líti á formann húsfélagsins eins og húsvörð og hringi í hann til að biðja um að fá pípara í smá viðvik eða sambærilegt verk.

Þátturinn Afsal er endursýndur á Hringbraut í allan dag og á laugardagskvöld.