Bryndís Héðinsdóttir, lögfræðingur Húseigendafélagsins, segir nágrannaerjur geta endað fyrir dómi og þá jafnvel með þeim lyktum að dómstólar skikki fólk til að selja eignirnar sínar og flytja.
Þetta var meðal þess sem kom fram í þættinum Ég bara spyr sem sýndur var á Hringbraut í gærkvöld, en þar svara sérfræðingar stóru spurningunum í samfélagsumræðunni. Í þætti gærkvöldsins voru nágrannaerjur og reglur í fjölbýlishúsum ræddar, en í sumar fékk kona á sjötugsaldri á sig dóm fyrir að hóta nágrönnum sínum lífláti.
Bryndís segir ýmis mál rata inn á borð Húseigendafélagsins vegna deilna nágranna. Þau mál geti verið allt frá því að snúast um vonda lykt, umgengni, framkvæmdir á húsnæði eða tré sem skyggja á sólpalla.
Umsjónarmenn þáttarins Ég bara spyr eru nöfnurnar Rakel Sveinsdóttir og Rakel Garðarsdóttir. Sú síðarnefnda sér um neytendamálin og í lok þáttarins fer hún á stúfana og spyrst aðeins fyrir um netverslun við Kína. Um þau mál hefur fólk mikið spurt um á upplýsingaveitunni Spyr.is, en áhorfendur Hringbrautar geta tekið þátt í dagskrárgerð Ég bara spyr með því að senda fyrirspurnir til Spyr.is. Í hverri viku er valið úr svörum til að ræða nánar í þættinum.
Þátturinn er á dagskrá öll þriðjudagskvöld, en einnig sjáanlegur á hringbraut.is.