Nöfn mannanna sem létust

Ungi maðurinn sem lést í árekstri á hringveginum við bæinn Einarsstaði í Kræklingahlíð norðan Akureyrar í gær hét Þórlaugur Ragnar Ólafsson.

Hann var búsettur á Akureyri, átján ára gamall. Þórlaugur Ragnar var úrskurðaður látinn við komu á Sjúkrahúsið á Akureyri. Hann var á leið út úr bænum þegar árekstur varð milli fólksbíls sem hann stýrði og flutningabíls. Hálka var þegar banaslysið varð.

Þetta er annað banaslysið í umferðinni á tveimur dögum en maður á hjóli lést í umferðarslysi í Ártúnsbrekkunni. Hann hét Juan Francisco Valencia Palmero. Juan var 55 ára gamall og til heimilis að Álakvísl 16 í Reykjavík. Juan fæddist á Spáni en hafði búið á Íslandi í um 35 ár. Hann lætur eftir sig eiginkonu og tvö uppkomin börn.