Nafn stefáns æ oftar nefnt

Eftir þau tíðindi helgarinnar þegar Jón Gnarr, fyrrverandi borgarstjóri  tilkynnti að hann hygðist ekki bjóða sig fram sem forseti Íslands hafa opnast tækifæri fyrir aðra. Ný nöfn skjóta upp kollinum á meðan önnur dala í umræðunni. Stefán Eiríksson fyrrverandi lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu og núverandi forstöðumaður velferðarsviðs Reykjavíkurborgar er nú æ oftar nefndur í þessu samhengi, en hann þykir af lipurð og yfirvægi hafa komist svo vel frá sínum hlut í hrunadansi lekamálsins að virðingin ein situr eftir. Hann þykir að auki bæði gáfaður og geðþekkur og hafa aldrei hafið sig á þann stall sem margir embættismenn telja hæfa titli sínum. Sama gildir um Kristinn Sigmundsson óperusöngvara sem einnig er nefndur sem líklegur frambjóðandi til forseta Íslands, en frægð og umtal hafa aldrei stigið honum til höfuðs, heldur hefur hann þvert á móti haldið sig á meðal alþýðu manna í frægð sinni allri og velgengni. 


Ásókn virðist einmitt í frambjóðendur sem eru lausir við uppskafningshátt og tilbúinn dýrðarljóma ríkidæmis en eru þess heldur nær hinu venjulega umhverfi almennings.


Athygli vekur við eftirgrennslan helgarinnar hjá hringbraut.is að minnkandi spurn er eftir þeim konum sem hafa helst verið í umræðunni, s.s. Björk Guðmundsdóttur, Guðrúnu Nordal, Rögnu Árnadóttur og Þóru Arnórsdóttur, hvað sem síðar kann að verða.


Forsetakosningar eru að rífu ári, en enn er óljóst hvort Ólafur Ragnar Grímsson sækist eftir endurkjöri en hann er á 72. aldursári. Hann hefur setið lengur á forsetastóli en nokkur annarra fyrirrennara sinna, eða í fimmtung aldar á næsta ári.