Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi við hornafjörð

Maðurinn sem lést í umferðarslysi við Hornafjörð þann 21. nóvember síðastliðinn hét Bergur Bjarnason, bóndi í Viðborðsseli. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi. Þar segir enn fremur:

Hann var fæddur þann 4. apríl 1934.  Bergur lætur eftir sig sambýliskonu og tvö uppkomin börn.