Næstum 100 stórar vélar í flotanum

Íslensk flug­fé­lög verða með næstum 100 stórar flugvélar í rekstri í ár. Þar af eru 6 þeirra stór­ar þotur. Icelanda­ir Group er ­stærsta ­fé­lagið með um 50 flug­vél­ar í rekstri í ár og ætlar að taka 16 nýj­ar Boeing 737-MAX vél­ar í notk­un fram til árs­ins 2021, samkvæmt úttekt Morgunblaðsins á flugflotanum.

WOW air verður komið með með 24 farþegaþotur í notk­un í lok þessa árs, en Icelanda­ir 33. WOW air og Icelanda­ir verða því með sam­tals 57 þotur í ár.

Air Atlanta Icelandic er í þriðja sæti hvað fjölda flug­véla snert­ir. Fé­lagið er með 14 breiðþotur. Þar af eru 13 af gerðinni 747-400 en ein þotan er af gerðinni Air­bus A340. Sex þotur Atlanta eru notaðar til vöru­flutn­inga en átta til farþega­flutn­inga.

Flug­fé­lagið Blá­fugl (Blu­ebird Nordic) er síðan með átta frakt­vél­ar í rekstri, fjór­ar Boeing 737-300 og fjór­ar Boeing 737-400 þotur.