Drífa Snædal, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins og Sverrir Mar Albertsson, framkvæmdastjóri AFLs starfsgreinasambands bjóða sig fram í forsetakjöri ASÍ sem hefst kl. 10:15 í fyrramálið og er búist við úrslitum fyrir kl.11 sama dag.
Þing Alþýðusambands Íslands (ASÍ) hófst í gærmorgun en þingin eru haldin á tveggja ára fresti. Fyrir liggur að um 300 þingfulltrúar úr 48 stéttarfélögum munu kjósa nýja forystumenn ASÍ á föstudag. Nýjan forseta, tvo nýja varaforseta og miðstjórn.
Drífa og Sverrir mæta í ítarlegt viðtal í 21 í kvöld til Lindu Blöndal. Þar segja þau meðal annars að næstu vikur muni hafa úrslitaáhrif á hvernig gengur að ná talsambandi við stjórnvöld fyrir kjarasamningana og hvaða áherslur verði ofaná hjá stéttarfélögunum. Iðnaðarmenn hafa t.d. ekki enn mótað sínar kröfur, bendir Drífa á. Sverrir minnist á að verkalýðshreyfingin sé í grunnin sterk á Íslandi, ólíkt öðrum Norðurlöndum er hér mörg lítil félög um allt land og nándin við fólk mikil. Hins vegar hafi verið rangt af stjórn ASÍ að mati Sverris að standa álengdar þegar búsáhaldabyltingin varð og fólk hafi litið á verkalýðshreyfinguna þá frekar sem part af kerfinu. Drífa sagðist hafa fyrst heyrt af því í setningarræðu Gylfa Arnbjörnssonar, fráfarandi forseta ASÍ að skipuleggjendur - og nefnir Hörð Torfason - hafi beðið ASÍ um að taka ekki þátt sem slíkt í mótmælunum eftir hrun.
„Mér finnst engin róttækni felast í þessum launakröfum“, segir Drífa um þær kröfur sem Starfsgreinasambandið og Landsamband verslunarmanna hafa sammælst um og þykja langtum of háar af atvinnurekendum og því stefnir í hart. Drífa nýtur stuðnings þeirra sem mestu yfirýsingarnar hafa hafti uppi um misrétti í samfélaginu, svo sem Ragnars Þórs Ingólfssonar, formanns VR. Hún segist ekki hafa beðið um stuðning eins né neins og sér ekki að slík yfirlýsing sé óviðeigandi. Sverrir segist ekki vita hvaða fólk styðji hann, hann fái „mörg þétt handtök“, en svo sé ekki neitt ljóst.
Hann vísar því til stjórnvalda í landinu að staðan sé orðin eins og hún er að margt fólk lifi ekki af launum sínum – það sé ekki við fráfarandi forystu ASÍ að sakast.
Bæði segja SALEK samkomulagið misheppnað, illa úthugsað og dautt.
Stór verkefni eru í höndum þingsins sem snúa að fimm meginþáttum: Tekjuskiptingu og jöfnuði, jafnvægi atvinnuþátttöku og einkalífs, húsnæðismálum, tækniþróun og skipulagi vinnunnar og heilbrigðisþjónustu og velferðarkerfinu.