Í samantekt RÚV um málið í morgun segir að sérfræðingar bresku veðurstofunnar telji að meðalyfirborðshiti jarðarinnar í ár sé við það að slá öll met og sé um 0,6 gráðum á Celsíus yfir meðaltali tímabilsins 1961-1990. Hár lofthiti það sem af er árinu bendi til þess að ekkert lát sé á áhrifum loftmengunar af völdum svokallaðra gróðurhúsaloftegunda. Vísindamenn sjái nú áhrif orku af völdum þeirra sem stöðugt safnist upp í úthöfunum og í andrúmsloftinu.
Áhrif koltvísýrings á andrúmsloftið valdi því að búist sé við stórfelldum breytingingum á loftslagi jarðarinnar. Verði ekkert stórskostlegt eldgos þar sem gosaska í háloftum valdi kólnun þá líti út fyrir að árin 2014, 2015 og 2016 verði meðal heitustu ára á jörðinni frá því að mælingar hófust.
Ný rannsókn sýni að El Nino veðurfyrirbærið sé að magnast í Kyrrhafi sem búist er við að bæti í lofthita um heim allan. Þetta geti aukið hættu á þurrkum í Suður-Afríku, Austur-Asíu og á Filippseyjum og valdið flóðum í Suður-Ameríku. Eina góða sem það gæti haft í för með sér væri að fjögurra ár þurrkum í Kaliforníu lyki, segir í samantekt RÚV.