Næstu skref sí í vaxtamálum

Ingólfur Bender hagfræðingur SI-Samtaka iðnaðarins skrifar um vaxtaákvörðun Seðlabanka Íslands (SÍ) í gær. Ingólfur skrifar að þær vísbendingar sem lesa má úr yfirlýsingu SÍ í gær eru nokkuð hlutlausar varðandi næstu skref SÍ í vaxtamálum.

Verðbólgan er hins vegar mjög hófleg eða um 1,7% og því nokkuð undir verðbólgumarkmiðum SÍ. Verðbólguhorfur eru einnig góðar og verðbólguvæntingar eru lágar.

Það virðist því vera svigrúm fyrir SÍ að stíga fleiri skref í átt til lægri vaxta á næstunni. Næsti vaxtaákvörðunardagur SÍ er hinn 23. ágúst nk.

rtá

Nánar www.si.is