Næsti heimsfaraldur á næsta leiti?

Sigurður Guðmundsson læknir á smitsjúkdómadeild Landspítalans segir ekki vitað hver næsti heimsfaraldur smitsjúkdóma verður eða hvenær, en hitt sé ljóst að hann muni koma. Þetta kom fram í sjónvarpsþættinum Heimsljósi sem var frumsýndur á Hringbraut í gærkvöldi.


Sigurður segir líklegast að þessi faraldur eigi uppruna sinn í Afríku eða Asíu, og muni sennilega berast annaðhvort með skordýrum eða fuglum. Hann segist vona að Vesturlönd hafi þá dregið mikilsverðan lærdóm af viðbrögðunum við ebólufaraldrinum sem voru of sein og of lítil, og urðu til þess að ebólan náði þeirri útbreiðslu sem raun ber vitni.  Siðferðilega beri ríkari þjóðum heims skylda til að taka þátt í að vinna gegn á sjúkdómum sem eiga uppruna sinn í Afríku og Asíu og aðstoða fátækari ríki heims í baráttunni við smitsjúkdóma, jafnvel þó þeir séu staðbundnir og ógni ekki íbúum Vesturlanda.


Heimsljós í gærkvöld var tileinkað heimsfaraldri á borð við ebóluna en þar var meðal annars rætt við Íslendinga sem verið hafa á verst leiknu smitsvæðunum í Afríku síðustyu misseri.


Þáttinn er hægt að nálgast í heild sinni á hringbraut.is, svo og klippur úr honum.