Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra nýtur mests fylgir af þeim fjórum mögulegu frambjóðendum sem teflt er fram í nýjustu skoðanakönnun Hringbrautar um nýjan forseta landsmanna.
Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna hefur notið mests stuðnings í þessum könnunum Hringbrautar á undanliðnum vikum, en eftir að hún afréð að taka ekki þátt í baráttunni afréð Hringbraut að spyrja lesendur vefjarins hvern af fjórum þeim litist best á sem næsta forseta landsmanna; Ólaf Jóhann Ólafsson, Salvöru Nordal, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur og Össur, en öll þykja þau frambærilegir frambjóðendur með fullri virðingu fyrir öðrum þeim sem lýst hafa áhuga á að setjast að á Bessastöðum.
Af þeim fjölda sem tekið hefur þátt í óformlegri könnun Hringbrautar vilja 45% Össur á Bessastaði, 27% nefna Ólaf Jóhann, 14% Salvöru Nordal og 13% Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur.
Hringbraut mun á næstu vikum halda áfram með kannanir af þessu tagi þar sem lesendur vefjarins geta valið á milli þeirra fjögurra sem helst þykja koma til álita sem næsti forseti Íslands.