Næsti forseti frakka

Kjörstaðir í Frakklandi opnuðu klukkan átta að staðartíma.  Kjörstaðir loka klukkan ýmist klukkan sjö eða átta í kvöld að staðartíma.

Óvissa er mikil um úrslittin hvað svo sem allar spár segja. 

Fyrstu hugsanleg úrslit væru þau að Emmanuel Macron fengir 65% og Marine Le Pen fengi 35%. Þar með væri Macron afgerandi sigurvegari. 

Önnur hugsanleg úrslit væru að þau að Emmanuel Macron fengi 55% og Marine Le Pen fengi 45%. Það myndi þýða að hylli Macron hefur dalað.

Þriðju hugsanleg úrslit væru þau að Emmanuel Macron fengi 80% og Marine Le Pen fengi 20%. Þá væri pólitísk framtíð Marine Le Pen ráðin. Hver tæki við hjá frönsku Þjóðfylkingunni er stór spurning.

Fjórðu hugsanleg úrslit væru þau að Emmanuel Macron fengi 49,9% og Marine Le Pen fengi 51,1%. Þá myndi Frakklandi stjórnað af konu og Evrópu stjórnað af konu sem er frú Angela Merkel. Þetta sögðu fréttskýrendur rétt í þessu í þætti bresku sjónvarpi.

Kjörsókn getur orðið dræm í Frakklandi  í dag og einnig er ekki ólíklegt að margir kjósendur skili auðurm eða ógildum atkvæðaseðlum.

rtá