Verður næsta eldgos í bárðarbungu?

 

Páll Einarsson, prófessor í jarðeðlisfræði, telur ekki ólíklegt að næsta eldgos innanlands verði í Bárðarbungu.

„Þetta eldstöðvakerfi sem Bárðarbunga er miðjan í gýs oft úti á sprungusveimunum, en enn oftar í bungunni sjálfri,“ segir jarðvísindamaðurinn í frétt Rúv.

Bárðarbunga hefur haft hægt um sig frá því að gosinu í Holuhrauni lauk en nýjar mælingar benda til að virkni sé aftur hafin. Fram kemur í frétt Rúv að jarðvísindamenn kanni nú merki um að kvika geti verið farin að safnast aftur undir Bárðarbungu.

„Við eigum náttúrulega 30 eldstöðvakerfi hér, og þau eru hvert með sína skapgerð. Til þess að segja til um hvað sé líklegt að gerist á næstunni, þá þurfum við að þekkja þau dálítið persónulega,“ hefur fréttastofa Ríkisútvarpsins eftir Páli.