Nærtækast að ráða fólki frá kærum!

„Nú rignir eldi og brennisteini eins og stundum áður. Það er svo komið að okkur sýnist ekki bara erfitt að mæla með því að kæra kynferðisofbeldi. Okkur sýnist að svo sé komið að nærtækast sé að ráða fólki frá því að kæra,“ segir í tilkynningu frá Stígamótum.

Í morgun voru fimm menn sýknaðir af hópnauðgun á stúlku undir 18 ára aldri. Verjandi hefur dregið ábyrgð Stígamóta og dómstóls götunnar inn í fréttaumræðu og fyrir nokkrum dögum kærðu menn sem kærðir hafa verið fyrir nauðgun í Hlíðunum tvo nema við HR fyrir falsakar sakargiftir.

„Það er ekki bara vonlítið að ná fram réttlæti, heldur á fólk á hættu að vera úthrópað glæpafólk. Það getur átt von á að vera kært fyrir falskar ásakanir og þurfa þá að sanna það sem lögreglunni tekst oftast ekki að sanna, að nauðgun hafi átt sér stað. Í þá stöðu er ekki hægt að setja fólk og það er óviðunandi,“ segir í glænýrri tilkynningu Stígamóta.

Einnig kemur fram að grasrótin í kvennahreyfingunni sé sprelllifandi og lokaðir hópar kvenna sem beittar hafa verið kynferðisofbeldi, hafi óskað eftir stuðningi og neyðarfundi hjá Stígamótum til þess að geta haldið utanum hverja aðra og til þess láta ekki óréttinn buga sig. „Ef fleiri konur sem haldnar eru áfallastreitu vegna kynferðisofbeldis vilja sitja svona fundi, vinsamlegast hringið til okkar í 5626868. Í þessu ríki þykir ríkja mest jafnrétti í öllum heiminum sjöunda árið í röð.“

Stígamót minna á Sannleikssjóð samtakanna vegna umræðunnar. Hann er ætlaður til þess að styðja við þær konur sem eru kærðar fyrir að segja frá ofbeldi gegn sér. \"Í honum er lítið fé, en við gætum reynt að efla hann.\"