Karl Ólafur Hallbjörnsson, annar umsjónarmaður Nálarinnar ræðir um húsnæðismál ungs fólk, við Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttir, ritara og frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og Guðmund Ara Sigurjónsson, bæjarfulltrúa á Seltjarnarnesi og frambjóðanda Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi.
Annar þáttur Nálarinnar verður sýndur í kvöld klukkan 21:30 á Hringbraut. Í þættinum verður fjallað um húsnæðisvandann sem ungt fólk í dag stendur frammi fyrir. Meðal annars verður drepið á ýmsum áhrifavöldum sem spila inn í þetta vandamál - kaupmætti ungs fólks, aðgengi þess að lánsfé og samspili framboðs og eftirspurnar á húsnæðismarkaði.
Til umræðu koma mismunandi lausnir hvað varðar aðgengi ungs fólks að séreignasparnaði og byggingu stúdentaíbúða. Þá var einnig rætt um háa vaxtabyrði og afléttingu reglugerða í byggingariðnaði.
Umsjónarmenn Nálarinnar eru Karl Ólafur Hallbjörnsson og Bjarni Halldór Janusson