Borgarráð samþykkti í dag að auka framlög til sérkennslu í leik-og grunnskólum og sömuleiðis til efniskostnaðar og faglegs starfs. Einnig mun fjármagn til hráefniskaupa aukast með hækkun fæðisgjalda.
Með grófum reikningum verða þetta útgjöld upp á einn milljarð króna á þessu ári.
Formaður Félags leikskólakennara, Haraldur Gíslaon segir þetta góð tíðindi en hins vegar vanti mjög stóran hóp leikskólakennara um allt land.