Krónan minnir á duttlunga sína.
Eftir nær samfellda styrkingu frá árinu 2014 hefur gengi krónunnar verið býsan sveiflukennt frá áramótum þó það hafi áfram styrkst eða um 3,5% miðað við gengisvísitölu skrifar Greiningardeild Arion banka í dag.
Síðustu vikur hefur krónan veikst talsvert t.d. um 6% í þessum mánuði gagnvart evru - þvert á væntingar margra sem bjuggust við gengisstyrkingu samfara háannatíma í ferðaþjónustu.
Gengisveikingin síðustu vikur er ágæt áminning um að fjölmargir aðrir þættir en ferðamenn hafa áhrif á krónuna og að mjög erfitt er að spá um gengi hennar - einkum til skemmri tíma.
Smár gjaldeyrismarkaður hefur líka talsverð áhrif og ýkir sveiflurnar. Þó að vænta megi mikils viðskiptaafgangs næstu mánuði vegna ferðamannstraums er þróunin tvísýn.
Til dæmis á eftir að skýrast betur hvaða áhrif sterkt raungengi mun hafa á utanríkisverslun og hvernig lífeyrissjóðir og aðrir innlendir fjárfestar bregðast við auknu frelsi til erlendra fjárfestinga.
rtá
Nánar www.arionbanki.is