Sjálfstæðismenn, Píratar og Björt framtíð vilja skoða nýjan gjaldmiðil í stað íslensku krónunnar og Vinstri hreyfingin grænt framboð ætlar að ræða málin betur innan sinna raða á vormánuðum.
Þetta kemur fram í svörum flokkanna á Spyr.is, þar sem spurt er um hvort og þá hvaða stjórnmálaflokkar hafa það á áætlun sinni að skipta út íslensku krónunni.
Í stefnuyfirlýsingu Sjálfstæðisflokksins frá landsfundi síðastliðið haust, kemur fram að íslenska krónan er ekki talin framtíðargjaldmiðill þjóðarinnar í alþjóða viðskiptaumhverfi og því þurfi að kanna aðra valmöguleika.
Í svari segist Helgi Hrafn Gunnarsson, Pírati, engan veginn skilja hvers vegna Seðlabankinn telur kanadíska dollaran ,,fráleitan” og segir að í þessu máli eigi almenningur að hafa sitt að segja, þar á meðal hvað fólki finnst um evruna.
Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs segir að vinstri grænir séu ekki samþykkir einhliða upptöku á öðrum gjaldmiðli og vilji heldur ekki ganga í ESB, sem er skilyrði fyrir upptöku evrunnar. Hún segir þó að fyrir liggi að taka umræðuna nánar á vorönn og ræða gjaldmiðilinn.
Björt framtíð segist alltaf hafa talað fyrir öðrum gjaldmiðli og nefnir nokkur atriði máli sínu til stuðnings.
Athygli vekur að í svari Spyr.is kemur fram að Framsóknarflokkurinn og Samfylkingin svöruðu ekki fyrirspurn frá Spyr.is, né ítrekunum. Þetta er mjög óalgengt, þar sem fyrirspurnargátt Spyr.is er ætlað að vera aðgengi almennings að stjórnmálaflokkum, stofnunum og fleirum, á sama hátt og almennt gildir um blaða- og fréttamenn.
Nánar má lesa svör flokkanna á Spyr.is.