„Væri ekki nær að svipta Svein Andra lögmannsréttindum?“
Svo spyr Auður Jónsdóttir, einn ástsælasti rithöfundur þjóðarinnar í færslu á facebook.
Ummælin falla þar sem rithöfundurinn tengir við frétt um að Sveinn Andri krefjist þess að Biggi lögga verði rekinn eftir ummæli sem hann lét falla um sýknudóm í kynferðisbrotamáli.
Eins og Hringbraut hefur greint frá er það mál nú til skoðunar hjá lögreglustjóraembættinu á höfuðborgarsvæðinu.
Rökin fyrir því að nær væri að svipta Svein Andra lifibrauði sínu fremur en Bigga löggu eru eftirfarandi eins og fram kemur í færslu Auðar Jónsdóttur:
„Ef maður gúgglar nafnið hans er það fyrsta sem kemur upp Sveinn Andri DNA. Af gúgglinu að dæma fæ ég ekki betur séð en að DNA-próf hafi staðfest að þessi maður hafi barnað sautján ára stúlku sem hann kynntist víst þegar hún var sextán ára. Má fimmtugur maður barna barn og samt praktísera lög sem hæstaréttarlögmaður?“
Fjölmargir hafa lýst velþóknun á orðum rithöfundarins, m.a. Birgitta Jónsdóttir, þingmaður pírata, sem hefur \"lækað\" færsluna.