79% landsmanna vilja framhald viðræðna við Evrópusambandið samkvæmt nýrri könnun sem Stöð 2 kynnti í kvöld. Einungis 20% eru þeirrar skoðunar að slíta eigi viðræðunum. Fram kom í könnunni að helmingur sjálfstæðismanna vill halda viðræðunum opnum.
Þegar spurt var hvort fólk vildi aðild að ESB snerust hlutföllin svo að segja við; tveir af hverjum þremur er því mótfallinn, en þriðjungur því fylgjandi. Samkvæmt þessum niðustöðum vill fólk fá að sjá hvað er í boði í samningaviðræðum við Evrópusambandsríkin 28, en vill mun síður sjá aðild á meðan upplýsingar um innihald viðræðnanna liggja ekki fyrir.
Stjórnmælafræðingar hafa bent á að niðurstöður í þessa veru séu mjög í anda þess sem gerst hefur hjá öðrum þjóðum Evrópu sem nýverið hafa gengið til liðs við sambandið; andstaða við aðild hafi alla jafna verið rík þar til almenningur hafi séð samninginn.