Reykjavíkurborg mun leggja 690 milljónir króna í malbiksviðgerðir í sumar og gerir jafnvel ráð fyrir að meira fjármagn þurfi í gatnakerfið. Um þessar mundir er verið að vinna að úttekt á ástandi gatnakerfisins í borginni og mun það koma í ljós eftir að þeirri vinnu lýkur, hvort meira fjármagn þurfi til viðgerða. Þetta kemur fram í svari Bjarna Brynjólfssonar, upplýsingastjóra Reykjavíkurborgar, við spurningu lesanda á spyr.is sem er vefur sem gefur fólki kleift að fá svör við þeim spurningum sem þáð langar að fá úrlausn við.
Stjórnendur borgarinnar, svo og Vegagerðarinnar hafa verið harðlega gagnrýndir í vetur fyrir slælegt viðhald á götum borgarinnar, jafnt þjóðvegum í þéttbýli og götum innan hverfa hennar. Veðurfar hefur að vísu verið mótdrægt viðhaldsvinnu í vetur, svo vægt sé til orða tekið, en fyrir vikið hefur fjöldi ökumanna lent í tjóni á hjólabúnaði bíla sína sem hafa lent ofan í djúpum holum á strætum, brautum og vegum.