Frá því að samningur var gerður um gjaldfrjálsar tannlækningar, hefur börnum sem fara til tannlæknis fjölgað um 25,75%. Hér er um að ræða börn í aldurshópnum 13-17 ára, sem voru fyrstu árgangarnir sem höfðu rétt á frírri tannlæknaþjónustu samkvæmt samningi ríkisins við félag tannlækna. Samningurinn tók fyrst gildi um mitt árið 2013 og því er árið í fyrra fyrsta heila árið sem hægt er að skoða fyrir þennan aldurshóp. Fjölgunin sem hér er nefnd, er samanburður á milli áranna 2012 og 2014.
Á næsta ári verður hægt að sjá hvað hefur gerst í aldurshópnum 9-12 ára, en samningurinn tekur gildi í þrepum og því þarf að horfa á fyrsta heila árið, eftir að samningur tekur gildi. Þetta kemur fram í svari Reynis Jónssonar, tryggingayfirtannlæknis, sem svaraði spurningu lesanda á upplýsingaveitunni spyr.is þar sem nánar má skoða umsögn Reynis um málið.