Nær 2000 bíða eftir augnaðgerð

Nærfellt 2000 manns biðu eftir aðgerð á augnsteinum í október samkvæmt nýju yfirliti Landlæknisembættisins, en næstum 90% þessara sjúklinga höfðu beðið lengur en 90 daga eftir aðgerð.
 
Fram kemur á vef embættisins í dag, þar sem birtur er listi yfir þá sem bíða eftir völdum skurðaðgerðum, að meðalbiðtíminn eftir aðgerð var 39 vikur, eða 273 dagar, en dæmi séu um mun lengri biðtíma
 

Á vefnum segir að langflestar þessara aðgerða séu gerðar á Landspítalanum og hafi verkföll síðustu missera haft mikil áhrif á afköst hans í þessum efnum.

Lengstur er biðtíminn eftir gerviliðaaðgerð á hné, eða 53 vikur, en hátt í 850 manns bíða eftir slíkri aðgerð. Allt að 41 viku bið er eftir aðgerðum á borð við brottnám á legi, gervilaðaaðgerðum á mjöðm og völdum aðgerðum á grindarholslíffærum kvenna. Á milli 190 og 520  bíða eftir þessum aðgerðum. 171 bíður eftir hjarta- og kransæðamyndatöku og hefur fækkað á þeim biðlista um 103 frá því í október í fyrra.