Nær 100% kjörsókn í norður-kóreu

Allir kosningabærir íbúar Norður-Kóreu tóku þátt í sveitarstjórnarkosningunum sem haldnar voru um helgina. Einungis þeir sem voru erlendir kusu ekki, en kjörsókn var 99,97%. Ríkisfjölmiðilinn KCNA greinir frá þessu. 

Þessi gífurlega kjörsókn þarf þó ekki að koma neinum á óvart og er í raun ekkert óeðlilegt að greint sé frá því að kosningaþátttaka sé nálægt 100% í ríkinu. Í þingkosningunum í fyrra voru tölurnar með svipuðu móti, en frambjóðendur eru gjarnan einstaklingar sem stjórnvöld hafa valið sérstaklega og eru þeir þá kjörnir með yfirburðum. 

Síðustu sveitarstjórnarkosningarnar voru haldnar árið 2011, en þá var kjörsókn 99,7%. Frambjóðendur voru þá kjörnir í sveitarstjórnir með öllum greiddum atkvæðum. Í frétt The Telegraph er því haldið fram að kosningar í Norður-Kóreu séu notaðar sem aðferð stjórnvalda til að hafa uppi á ákveðnum einstaklingum og kanna hvort íbúar ríkisins hafi farið úr landi. 

Sveitarstjórnarkosningarnar í ár eru þær fyrstu sem haldnar eru undir stjórn Kim Jong-un. Talið er að þær séu fyrst og fremst notaðar til að réttlæta orðið lýðræði í nafni ríkisins: Lýðveldi Lýðræðislega Fólksins í Kóreu eða The Democratic People\s Republic of Korea. 

'