Nær 10 metra snjódýpt á laugavegi

Fjallafólk og leiðsögumenn á vinsælustu gönguleiðunum inn til landsins, svo sem á margfrægum Laugavegi á milli Landmannalauga og Þórsmerkur, muna vart önnur eins snjóþyngsli á svæðinu þegar ágústmánuður nálgast.

Hætt hefur verið við fjölda skipulagðra ferða á þessum slóðum af ástæðu sem rekja má beint til kulda og færis, en gönguleiðir, svo sem um Jökulgil og á Torfajökulssvæðinu að Fjallabaki hafa verið svo torfærar og seinfarnar fram eftir sumri að vart eða ekki hefur tekið því að stefna þangað fjölmenni. Þessi svæði eru iðulega að langmestu leyti auð í byrjun júlí nema þær leifar af jöklum sem þar hefur verið að finna, svo sem í kringum Hrafntinnusker, en nú bregður svo við að þar er allt meira og minna á kafi í snjó - og segir Sigurður Harðarson fjallamaður í samtali við Morgunblaðið í morgun að þar sé allt upp í 10 metra snjódýpt. \"Ég sé ekki að þessi snjór fari héðan af,\" segir hann.

Myndin sem fylgir þessari frétt er af skálanum í Hrafntinnuskeri sem Ferðafélagssmenn tóku í byrjun sumars, en þar var þá allt á kafi og hefur snjórinn látið lítið á sjá vegna lítils lofthita inn til landsins.