Ná bata á nokkr­um dög­um

Er  hægt að lækna fólk af OCD eða þrá­hyggju­árátturösk­un á fjór­um dög­um? Svo virðist vera því sam­kvæmt norskri meðferð sem hef­ur verið beitt á und­an­förn­um fjór­um árum hafa 70% þeirra 1.200 sem hafa tekið þátt í meðferðinni náð bata. Sama er uppi á ten­ingn­um hér á landi. Meðferðin er niður­greidd af rík­inu í Nor­egi en ekki hér á Íslandi þar sem þjón­usta sál­fræðinga er ekki niður­greidd af rík­inu, aðeins geðlækna.

OCD er geðrösk­un sem 2-3% mann­kyns glím­ir við og líkt og Magnús Har­alds­son, geðlækn­ir á Land­spít­al­an­um, bend­ir á í fræðigrein í Lækna­blaðinu er þrá­hyggju­árátturösk­un á meðal þeirra 20 sjúk­dóma sem lík­leg­ast­ir eru til þess að leiða til ör­orku hjá fólki yngra en 45 ára á Vest­ur­lönd­um.

Nokk­ur þúsund Íslend­ing­ar með þrá­hyggju­árátturösk­un

OCD er ekki al­geng kvíðarösk­un en um leið dul­in því marg­ir skamm­ast sín fyr­ir hana. Hugs­an­ir og hegðun fólks með OCD valda oft mikl­um óþæg­ind­um, kvíða og skömm þar sem fólk þorir oft ekki að greina öðrum frá hugs­un­um sín­um. Nokk­ur þúsund Íslend­ing­ar glíma við þrá­hyggju­árátturösk­un, að sögn sál­fræðinga hjá Kvíðameðferðar­stöðinni (KMS).

Meðal­ald­ur við upp­haf ein­kenna er um 20 ár en al­gengt er að rösk­un­in komi fram snemma á æv­inni og í einni rann­sókn lýsa um 20% ein­stak­linga því að ein­kenni hafi verið kom­in fram á æsku- eða unglings­ár­um.

Kyn­hlut­föll eru því sem næst jöfn þegar all­ir ald­urs­hóp­ar eru skoðaðir en rann­sókn­ir hafa sýnt að dreng­ir eru lík­legri en stúlk­ur til að grein­ast með þrá­hyggju­áráttu á barns­aldri.

Á bil­inu 30-50% þeirra sem veikj­ast snemma eru jafn­framt með tourette-heil­kenni eða aðra kækjarösk­un. Nokkr­ar rann­sókn­ir hafa fundið mun á ein­kenna­mynd eft­ir kynj­um. Þannig eru vís­bend­ing­ar um að þrá­hyggja hjá kon­um teng­ist oft­ar of­beldi, smit­hættu eða óhrein­ind­um, en hjá körl­um sé inni­hald þrá­hyggju oft­ar kyn­ferðis­legt eða trú­ar­legt.

Nánar á

https://www.mbl.is/frettir/

Ekki hafa veriðgerðarfar­alds­fræðileg­ar rann­sókn­ir á al­gengi þrá­hyggju­árátturösk­un­ar á Íslandi.