N4 í norrænt samstarf

Sjónvarpsstöðin N4 á Akureyri hefur fengið styrk frá verkefnasjóði  NORA, sem heyrir undir Norrænu ráðherranefndina, til að koma á fót samstarfi um gerð sjónvarpsþáttanna  Á norðurslóðum- I norden, frá Íslandi, Grænlandi, Færeyjum og Norður-Noregi með það að markmiði að kynna líf, menningu, lífshætti og störf á norðurslóðum og miðla því á frummáli á alþjóðlegum vettvangi.

Verkefnisstjóri er María Björk Ingvadóttir framkvæmdastjóri N4 en ritstjórn skipa fulltrúar sjónvarpsstöðva og fréttamiðla  á þessum slóðum sem leggja til innslög í þáttinn. Þetta er í fyrsta sinn sem slíkri samvinnu er hrundið af stað í þessum löndum með þessum hætti en fyrirmyndin er sótt í þáttinn Að norðan sem hefur verið á dagskrá N4 frá upphafi útsendinga. Undirbúningur er þegar hafinn og vonir standa til að fyrstu þættirnir verði tilbúnir til sýningar í haust.

Umfjöllunarefnið er ákveðið á hverjum stað fyrir sig en áhersla verður lögð á fjölbreytileika, fróðleik, lífshætti. Þó löndin séu landfræðilega nálægt hvert öðru og hafi margra sameiginlegra hagsmuna að gæta, er þekking íbúa innan Nora svæðisins takmörkuð, að ekki sé talað um utan þess. Tungumál svæðanna heyrast ekki oft, þar sem meginþorri fjölmiðlaefnis er á ensku og því er þetta leið til að leyfa þeim að hljóma víðar en í sínu heimalandi.

„N4 fagnar mjög þessum tímamótum og hlakkar til samstarfs um eflingu norræns sjónvarpsefnis frá norðurslóðum til heimsins,“ segir í fréttatilkynningu frá N4.