Forráðamenn olíufélagsins N1 gera athugasemdir við skýrslu Samkeppniseftirlitsins um markaðsfyrirkomulag á olíumarkaði, en frumdrög hennar voru sem kunnugt er birt í gær og greindu þau frá skorti á samkeppni sem merki að viðskiptavinir hafi greitt óeðlilega hátt verð fyrir eldsneyti á undanförnum árum.
Stjórnendur N1 fagna i sjálfu sér útkomu skýrslunnar og segja eðlilegt að úttekt af þessu tagi sé reglulega gerð á olíumarkaðnum, en vekja jafnframt athygli á því að N1 og aðrir aðilar á markaðnum hafi ekki fengið tækifæri til þess að koma athugasemdum á framfæri við Samkeppniseftirlitið um efni skýrslunnar og þær ályktanir sem þar eru dregnar.
Í tilkynningu frá N1 segir að olíufélagið telji að skýrslan staðfesti að virk og heilbrigð samkeppni ríki á íslenskum eldsneytismarkaði, enda sé það í samræmi við upplifun félagsins og starfsmanna þess á hverjum degi. N1 hafi haft mikinn hug á því að reyna að finna leiðir til þess að hagræða á markaði og haft frumkvæði að viðræðum við Samkeppniseftirlitið um hvaða leiðir væru þar færar.
Í skýrslunni birtist hins vegar það frummat Samkeppniseftirlitsins að á eldsneytismarkaði séu til staðar tilteknar aðstæður sem raski samkeppni. Byggir Samkeppniseftirlitið þá staðhæfingu sína á nokkrum þáttum, ekki síst þeim að álagning á bifreiðaeldsneyti til einstaklinga hér á landi sé óþarflega há og séu neytendur að greiða 3,2 til 3,6 milljörðum króna meira árlega fyrir bifreiðaeldsneyti en þeir þyrftu að gera ef samkeppnishömlur væru ekki til staðar.
\"N1 telur forsendur Samkeppniseftirlitsins rangar í þessum efnum, þar sem útreikningar í skýrslunni á smásöluverði eldsneytis á Íslandi byggja í meginatriðum á samanburði við Bretland, sem er augljóslega mun stærri og þéttbýlli markaður. Ef eldsneytisverð á Íslandi (án opinberra gjalda) væri 14 til18 krónum lægra, líkt og Samkeppniseftirlitið virðist telja eðlilegt, væri það lægra en meðaltal listaverðs bensíns í OECD löndum, t.d. lægra en í Danmörku og á sama reki og í Svíþjóð, til að nefna dæmi,\" segir í tilkynningu frá félaginu.
\"Það er því miður ekki raunhæft enda ljóst að landfræðileg staða Íslands, smæð markaðarins, hár hlutfallslegur flutnings- og dreifingarkostnaður og hár fjármagnskostnaður hefur óhjákvæmilega í för með sér að verð á eldsneyti sé hærra hér á landi en í flestum OECD löndum,\" segir ennfremur í tilskrifi félagsins, en þar eru einnig nefndir fleiri þættir sem gera megi athugasemdir við, svo sem að hér á landi séu sterkar vísbendingar um að olíufélögin samhæfi hegðun sína með þegjandi samhæfingu, m.a. þar sem gagnsæi á markaðnum geri keppinautum kleift að fylgjast að án þess að eiga í beinum eða óbeinum samskiptum sín á milli.
\"N1 vísar því alfarið á bug að einhvers konar meðvituð eða ómeðvituð samhæfing verðlagningar á bifreiðaeldsneyti sé til staðar. Félagið og starfsmenn þess finna þvert á móti fyrir harðvítugri samkeppni á smásölumarkaði eldsneytis, þar sem félögin öll keppa í sífellu um viðskipti einstaklinga með margvíslegum hætti, s.s. afsláttartilboðum og aukinni þjónustu. Umfangsmiklar markaðsaðgerðir allra olíufélaganna allt árið um kring eru að mati félagsins órækur vitnisburður um heilbrigða samkeppni,\" segir í tilkynningu frá stjórnendum N1.
.