N1 áformar að eignast festi hf

Festi hf. sérhæfir sig í rekstri verslunarfyrirtækja. Félagið rekur tuttug og átta verslanir undir merkjunum Krónan ELKO Nóatún og Kjarval. Einnig á félagið vöruhúsið Bakkann. Festi hf á sautján fasteignir sem eru annað hvort eru leigðar verslunum félagsins eða þriðju aðilum. Heildarstærð fasteignanna er um sjötíu og eitt þúsund fermetrar. Velta Festi hf eru rúmir þrjátíu og níu milljarða króna á rekstarárinu sem lauk hinn 28.febrúar sl.

N1 undirritaði í dag samkomulag sem tekur á helstu skilmálum vegna fyrirhugaðra kaupa N1 á öllu útgefnu hlutáfé í Festi hf. Nú hefjast samningaviðræður um kaupin sem enda með samkomulagi um efni kaupsamnings. Niðurstaða áreiðanleikakönnunar liggur senn fyrir. Endanlegt kaupverð ræðst af skuldastöðu Festi hf við afhendingu en heildarvirði Festi hf telst vera um þrjátíu og sjö milljarðar.

rtá

Nánar www.newsclient.omxgroup.com