Mývetningar saka hollywood um nísku

Veiðibændur í Mývatnssveit ræddu nýverið á aðalfundi félagsins erindi frá kvikmyndafyrirtækInu Truenorth sem hyggst standa fyrir umfangsmiklum tökum á ísi lögðu Mývatni í mars og apríl næstkomandi. Mikið fé mun berast í sveitina vegna umsvifanna en veiðibændur saka aðstandendur myndarinnar um nísku.

Truenorth er milliliður við bandarískt stórfyrirtæki sem kemur til landsins til að taka upp atriði í myndinni Fast and the Furious 8. Myndirnar hafa notið gríðarlegra vinsælda og verða tökurnar mikil innspýting í hagkerfi landsmanna. Fjöldi ökutækja verður fluttur til landsins af þessu tilefni. Meðal þekktustu leikara myndanna eru Jason Statham, Dwayne Johnson, Vin Diesel og Michelle Rodriguez.

Áætlaðir  tökudagar á Mývatni eru frá miðjum mars og fram í apríl. Veiðifélagið mun hafa tekjur af tökunum en þær verða víðar svo sem á Akranesi. Var á aðalfundi Veiðifélags Mývatns lesið upp úr erindi Truenorth þar sem segir m.a.:

“Við hjá Truenorth erum að undirbúa kvikmyndaverkefni í Mývatnssveitinni núna í mars. Þetta er töluvert stórt verkefni og munu um 350 manns koma að því og búa í sveitinni í nokkrar vikur. Mest af tökunum fer fram á ís úti á Mývatni og snýst um að mynda bíla aka úti á ísnum. Þeir sem við höfum verið í sambandi við eru landeigendur í Álftagerði og Skútustöðum ásamt að hafa sent inn erindi hjá Umhverfisstofnun vegna þessa. En við munum vera með eftirlit frá Umhverfisstofnun á meðan tökum stendur.\"

Undirbúningur mun byrja um miðjan febrúar, miklar æfingar verða á ísnum fyrir tökurnar.

Einnig segir að tökustaðarstjóri verði á staðnum allan tímann sem sjái til þess að öllum leyfisskilmálum sé uppfylgt ásamt fulltrúa frá Umhverfisstofnun. Í kostnaðaráætlun sé gert ráð fyrir tökustaðargjöldum en boðnar eru krónur 450.000 til Veiðifélags Mývetninga.

Athafnasvæði vegna gerðar bíómyndarinnar verður verulegur hluti Álftavogs, í syðsta hluta Mývatns, hringinn í kringum Hrútey sem og akstursleiðir þar á milli. Veiðibændur ræddu á fundi sínum hvort skörun yrði við dorg- og netaveiðar undis ís sem leyfðar eru tímabundið í Mývatni á þessum árstíma. Þá var rætt um umferð, mengun og hvort þóknunin væri við hæfi.

Voru veiðibændur sammála um að upphæðin sem renna ætti til félagsins væri allt of lág. Notað var orðið brandari um þessar 450.000 krónur. Þó var á það bent að gríðarfé yrði eftir í hagkerfi sveitarinnar vegna þessara umsvifa á tímum sem annars er að jafnaði rólegur. Hagnast ferðaþjónustan mest, enda allt gistirými sveitarinnar fullbókað. Hefur verið nefnt að hundruð milljóna skapist.

En mývetnskir veiðibændur vilja stærri hlut af þeirri köku.

Var eftir umræður á fundinum lagt til að stjórn veiðifélagsins verði falið að kanna verð á svipuðum heimildum fyrir tökum og farið er nú fram á á ísi lögðu vatninu. Einnig verði stefnt að sjálfstæðu eftirliti af hálfu veiðibænda og hvort hægt sé að stunda dorg- og netaveiði undir ís óhindrað á sama tíma.