Mývatni vonandi bjargað

Vonandi verður yfirlýsingin um björgun Mývatns, sem undirrituð var á ísi lögðu vatninu í dag, ekki sett á ís.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra og Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, rituðu í dag ásamt fulltrúum Skútustaðahrepps og fulltrúa Landgræðslu ríkisins, undir viljayfirlýsingu um samstarf við úrbætur í fráveitumálum við Mývatn. Unnið verður að framkvæmd þróunarverkefnis, sem felst í því að taka seyru úr skólpi í byggð við Mývatn og nýta hana til uppgræðslu á illa förnu landi á Hólasandi.

Lausnin er að miklu leyti nýmæli á Íslandi, en hún felst í aðskilnaði sk. svartvatns og grávatns, þar sem svartvatni er safnað og ekið burt og það síðan nýtt fjarri vatninu til landgræðslu.

„Þetta er góð lausn fyrir Mývatn og fyrir umhverfið,“ segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra. „Ávinningurinn við þetta er þríþættur; álag á lífríki Mývatns minnkar, næringarefnin eru nýtt sem áburður til landgræðslu og þessi lausn er hagkvæmari en þær lausnir sem hafa lengst af verið á borðinu. Hér er varúðarreglan virkjuð og hagsmunir náttúrunnar hafðir í fyrirrúmi.“

„Með þessari viljayfirlýsingu er staðfestur ríkur vilji ríkisstjórnarinnar til að koma að þessu mikilvæga verkefni með heimamönnum“ segir Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra. Það er sérstakt gleðiefni hversu vel heimamenn hafa haldið á þessu verkefni í samstarfi alla aðila. Þannig hefur verið fundin hagkvæm og umhverfisvæn lausn með aðkomu íslenskra sérfræðinga á fjölmörgum sviðum, allt frá verkfræði til landgræðslu.“

Vísindamenn hafa um skeið lýst yfir áhyggjum að innstreymi næringarefna af mannavöldum kunni að ýta undir bakteríublóma og fleiri neikvæða þætti í vistkerfi vatnsins. Umhverfis- og auðlindaráðuneytið lét gera úttekt á fráveitumálum við Mývatn 2017 og í kjölfar hennar gerði Skútustaðahreppur umbótaáætlun, þar sem fram kom að sveitarfélagið taldi sig ekki geta hrint henni í framkvæmd án aðstoðar ríkisvaldsins, þar sem kröfur væru strangar og umbætur dýrar fyrir fámennt sveitarfélag. Í desember 2017 ákvað ríkisstjórnin að ganga til viðræðna við Skútustaðahrepp um mögulega aðkomu ríkisins að fráveitumálum. Skútustaðahreppur setti svo fram nýja umbótaáætlun, sem var samþykkt af heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra í mars. Í kjölfar þess var gengið frá samkomulagi um aðkomu ríkisvaldsins að umbótaáætluninni, verkaskiptingu aðila og fjármögnun. Það samkomulag var formfest í viljayfirlýsingunni sem ritað var undir í dag.

Fráveitumál og landgræðsla í Mývatnssveit - viljayfirlýsingin