Áhugaverðar niðurstöður er að finna í glænýrri skýrslu dr. Gunnars Steins Jónssonar um ákomu næringarefna í Mývatn. Lesa má skýrsluna hér.
Skýrslan var unnin fyri Umhverfis- og auðlindaráðuneytið. Sigurjón Þórðarson líffræðingur segir í samtali við Hringbraut að hann telji að niðurstöðurnar hljóti að vera léttir fyrir þá sem hafa haft áhyggjur af því að aðsókn ferðamanna sé að sliga lífríki vatnsins.
Í skýrslunni kemur fram að að magn fosfórs virðist skipta höfuðmáli fyrir vöxt og viðgang blágerla sem valdi óæskilegu leirlosi í vatninu. Ef mikið er af forsfór aukist líkur á leirlosi. Fleira en ákoma fosfórs geti haft áhrif á vöxt blágerla s.s. samspil dýrastofna í vatninu. Hefur verið bent á að saur dýrasvifs og einkum fiska geti aukið á vöxtinn.
Heildarinnstreymi fosfórs í Mývatn er áætlað í skýrslunni um 52 tonn á ári. Fosfór berst að langmestu leyti í vatnið með lindum eða 51 tonn og, Eru því áhrif mannsins á innstreymi næringarefna óveruleg, að sögn Sigurjóns sem hefur skrifað bloggpistil um rannsóknina.
“Ferðaþjónustunni á svæðinu hlýtur að vera létt, en samkvæmt skýrslunni þá má rekja langt innan við 1% af fosfór innstreymi í vatnið til hennar,” segir Sigurjón.