Myrti konu sína og tók eigið líf

Karlmaður á sjötugsaldri myrtu konu sína í fjölbýlishúsi á Akranesi í nótt með skotvopni og svipti svo sjálfan sig lífi.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.
Þau fundust látin í íbúð þeirra í hádeginu í dag eftir að lögregla braut sér leið inn í íbúðina.
Konan var á sextugsaldri, starfsmaður í Grundarskóla á Akranesi.
Nemendur skólans voru sendir heim eftir að uppvíst varð um harmleikinn.