Ólafur Þór Gunnarsson, læknir og frambjóðandi Vinstri grænna í Suðvesturkjördæmi, sagði í Þjóðbraut í kvöld ekki hægt að mynda ríkisstjórn fyrir kosningar, áður en styrkur flokkanna verði ljós.
Ólafur Þór sagði að málefni næstu ríkisstjórnar eigi að ráðast af styrk þeirra flokka sem hana mynda. Sá flokkur sem mestan styrk hefur muni hafa meiri áhrif á málefnasamning væntanlegrar ríkisstjórnar en þeir flokkar sem hafa minna kjörfylgi.
Ólafur Þór nefndi að VG hafi þegar í febrúar byrjað að tala um að þeir flokkar sem hafa verið í minnihluta á kjörtímabilinu myndi næstu ríkisstjórn.
Óli Björn Kárason, frambjóðandi Sjálfstæðisflokks, sagði kosningarnar snúast um hvort Sjálfstæðisflokkur verði í ríkisstjórn, eða ekki.