Myndir dagsins: sjáðu hvernig flugstöðin í vatnsmýri mun líta út

Air Iceland Connect stefnir á miklar endurbætur á flugstöðinni á Reykjavíkurflugvelli. Á að færa hana í nútímalegra horf. Í fréttum Stöðvar 2 kom fram að Flugstefna Íslands geri ráð fyrir að flugvöllurinn verði áfram í Vatnsmýri.

Í frétt Stöðvar 2 segir að miðja hússins sé gamall braggi frá stríðsárunum sem búið er að byggja við í áföngum. Reykjavíkurflugvöllur stendur á landi í eigu ríkisins en borgin fer með skipulagsvaldið. Þá er Air Iceland Connect eigandi flugstöðvarinnar og áætlun um endurbætur hefur staðið yfir í þónokkurn tíma.

Fari allt að óskum mun flugvöllurinn líta svona út.

\"\"

\"\"