Það er búið að sýna myndir í sjónvarpsfréttatímum af húsleitinni hjá Samherja í þrjú og hálft ár. Endalaust hefur verið minnt á grun um efnahagsbrot sem hefur í sjálfu sér verið „andskoti mikil refsing“ segir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja.
Þetta kemur fram Í sjónvarpsviðtali við N4 en þar ber forstjóri Samherja, sem segist hafa verið reiður lengi vegna rannsóknarinnar, saman fjölmiðlaumfjöllun um t.d. slagsmál úti á götu og rannsóknina sem Samherji hefur sætt. Í slagsmálafrétt sé e.t.v. sagt einu sinni frá málinu þegar það komi upp og svo e.t.v einu sinni síðar ef dómur fellur. Forsvarsmenn Samherja og starfsmenn hafi aftur á móti mátt þola það linnulaust í fjölmiðlum að endalaust sé verið að rifja upp mál þeirra með myndum af húsleitinni, en málið hefur nú verið fellt niður. Forstjóri Samherja segir að svo virðist sem „fara megi með offorsi\" gegn þeim sem eigi pening til að verja sig.
Í frétt Rúv í dag segir að Jón Helgi Egilsson, varaformaður bankaráðs Seðlabankans, geri ráð fyrir að farið verði yfir málið á næsta fundi bankaráðs bankans 24. september. Forstjóri Samherja hefur farið fram á að bankaráð stöðvi það sem hann kallar misbeitingu valds í rannsókn gjaldeyriseftirlits Seðlabankans á Samherja og kalli yfirmenn bankans til ábyrgðar.