Upphaf skotárásar á myndbandi

Birtar hafa verið fjölmargar myndir af blóðbaðinu í Bataclan í París.

Sum myndbandanna hljóta að vera á mörkum hins siðferðislega til opinberra birtinga svo skömmu eftir hryllinginn. Hringbraut mun ekki taka þátt í dreifingu mynda og myndbanda sem siðferðislega verður að teljast vafasamt að birta.

Hér að neðan er myndband á youtube þar sem upphaf skotárásarinnar heyrist. Þar er það hljóðið sem er í aðalhlutverki, ekki myndmálið.

Rétt er að vara  við myndbandinu fyrir viðkvæma. Ekki færri en 89 létust í árásinni í tónleikahúsinu en tala fallinna gæti hækkað því margir eru alvarlega særðir.

Sjá má myndskeiðið hér.