Bæði Íslendingar og ferðamenn kepptust við að komast að gosinu í Merardölum um helgina.
Langar raðir mynduðust að gígnum í gærkvöldi og birti erlendur ferðamaður mynd af henni á Twitter síðu sinni.
The path to the eruption site in Iceland at night. pic.twitter.com/wFQJwMJ1xI
— Ryan Newburn (@SHBackpacker) August 13, 2022
Samkvæmt talningu Ferðamálastofu var um metfjölda að ræða en allt að 6500 manns lögðu leið sína að gosinu á laugardag sem er mesti fjöldi frá upphafi.
Björgunarsveitir sem staðið hafa í ströngu um helgina fagna því að landverðir muni brátt taka við gæslu á svæðinu en Jón Gunnarssonar, dómsmálaráðherra tilkynnti að slíkt úrræði myndi hefjast á næstu dögum.
Samkvæmt Steinari Þór Kristinssyni, svæðisstjóra hjá Björgunarsveitinni Þorbjörn var gríðarlega mikið um manninn í dag líka „Hér er allt stappað“ sagði Steinar. Gott veður hefur verið á gosstöðvunum í dag og því eflaust margir sem nýttu sér tækifærið til að bera herlegheitin augum.