Vegna fjölda áskorana hefur verið afráðið að endursýna leikna heimildarmynd Páls Steingrímssonar um Alzheimer-sjúkdóminn á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í kvöld.
Myndin, sem ber nafnið Hugarhvarf hefur vakið mikla athygli og nær stöðugt er beðið um endursýningar á henni, en hún var frumsýnd á Hringbraut síðasta vetur þótt nokkuð sé um liðið frá því hún var fullgerð.
Mynd Páls þykir sýna á afar sannfærandi hátt hvernig fólk sem berst við Alzheimer-sjúkdóminn þróar með sér margvísleg einkenni hans, en helstu leikendur í myndinni eru þau Kristbjörg Kjeld og Gísli Alfreðsson en túlkun þeirra á hjónunum, aðstandanda og sjúklingi þykir vera afar eftirminnileg.
Mynd Páls er á dagskrá klukkan 21:00 í kvöld.