Mynd dagsins: tuttugu þúsund í sekt fyrir þetta

Ökumaður bifreiðar sem ekki hafði sinnt því að skafa hélaðar rúður bílsins þarf að greiða 20.000 krónu sekt vegna málsins.

Í gærkvöldi hafði lögreglan á Suðurnesjum afskipti af ökumanni sem hóf akstur sinn án þess að hafa skafað hélaðar rúðurnar. Útsýni ökumannsins var því afar takmarkað og skapaði akstur hans því töluverða hættu í umferðinni.

Lögreglan brýnir fyrir ökumönnum að hreinsa ís og snjó vel af bílum sínum áður en ekið var af stað enda þurfi vart að tíunda mikilvægi þess að sjá vel út úr bílunum við akstur.